Hreggnasi kom að leigu Hafralónsár eftir útboð Veiðifélags Hafralónsár 2017. Nú hefur samningurinn verið framlengdur til næstu ára.
Samstarfið hefur gengið með miklum ágætum. Óhætt er að segja að umgjörð og orðspor vatnasvæðisins hafi tekið stakkaskiptum síðustu ár og má segja að Hafralónsá sé á góðri vegferð að ná fyrri styrk, enda um að ræða einhverja alfegurstu á landsins.
Veiðifélagið Hreggnasi hefur alla tíð horft á samvinnu landeigenda og leigutaka sé grunnurinn að góðum árangri í rekstri veiðivatna.
Fegurð Hafralónsár engu lík
Hafralónsá í Þistilfirði er ein af stærri dragám norðausturulands, 40 km. að lengd, með um það bil 770 ferkm. vatnasvið. Þá eru meðtaldar þverárnar Laxgeng er hún 23 km að Laxfossi og er þar að finna yfir 55 merkta veiðistaði. Hafralónsá þykir með þeim fallegri að veiða enda er umhverfi hennar rómað sem og veiðistaðirnir í ánni. Hún er þekkt fyrir stóra laxa.
Þess má geta að Hafralónsá er ekki aðili að „Six river project“.