Veiðitölurnar úr laxveiðiánum eru flestar komnar eftir sumarið. Aðeins er veitt ennþá í sleppiánum, Eystri og Ytri Rangá og Affalinu. Veiðimenn eru ennþá að veiða sjóbirting á fullu en það er aðeins minni sjóbirtingsveiði en oft áður en samt veiði víða.
Svo virðist sem sjóbirtingurinn sé farinn að dreifast meira víða um land. Hann sé farinn að veiðast í laxveiðiám sem lítið hafa gefið að eins og vestur í Dölum þar sem einn og einn birtingur veiddist áður fyrr.
Krossá á Skarðsströnd hefur aldrei gefið mikið af sjóbirtingi en í sumar gekk hellingur af honum í ána og veiddist töluvert. Áður fyrr veiddust þar bleikjur en nú sjást þær varla lengur. Allt getur breyst á nokkrum árum og engin veit neitt hvað er að gerast. Flundra æddi um allt fyrir nokkrum árum á þessum slóðum, þær hafa horfið líka.
Búið var að spá góðri laxveiði í sumar en veiðin slapp rétt til í sumum veiðiánum, laxinn gekk í sumar, en var svakalega tregur að taka hjá veiðimönnum.
,,Við vorum í Langá á Mýrum undir það síðasta, hellingur af fiski víða í ánni, en laxinum datt ekki í hug að taka neitt,“ sagði veiðimaðurinn sem við náðum tali af. Hann sagðist hafa frétt af öðrum sem fór í sex daga veiði núna í september og hann fékk ekki högg allan tímann.
Veiðin er alltaf jafn skrítin, lítið er vitað um það sem gerist í hafinu. Og hvað skeður næsta sumar veit bara enginn, fiskifræðingar spáðu góðri veiði í sumar, það féll um sjálf sig. Svona geta hlutirnir verið.
Hvernig verður hún næsta sumar veit enginn. Fáir vilja spá, flestir segja lítið sem ekkert. Það verður tíminn að leiða í ljós.
Mynd. Hann er á í Laxá í Kjós í Laxfossinum. Mynd GB