Nýverið var undirritaður langtíma samningur á milli Veiðifélagsins Hreggnasa annars vegar og Veiðifélags Svalbarðsár hins vegar, um áframhaldandi leigu þess fyrrnefnda að Svalbarðsá. Hreggnasi ehf hefur komið að leigu Svalbarðsár allt frá árinu 2007. Þá reis nýtt veiðihús við ána. Frá árinu 2009 hefur Svalbarðsá verið veidd undir „veiða og sleppa“ fyrirkomulaginu en við það hafa veiðitölur og seiðavísitala vaxið mjög til hins betra“.
Svalbarðsá er án efa meðal bestu laxveiðáa landsins. Meðalveiði undanfarin sumur er um 400 laxar, en þar af hefur hlutfall stórlaxa í aflanum verið yfir 60%. Þá hefur meðalveiði á hverja dagsstöng verið með því allra besta sem gerist á landinu.