,,Ég er bara orðlaus, það er varla annað hægt,“ segir Jóhann Davíð Snorrason sem er ýmsu vanur í veiði og hefur veitt þá marga í gegnum árin. En Eystri Rangá gaf 260 laxa í gær. Fyrir hádegi veiddust 59 laxar og síðan byrjaði maðkurinn eftir hádegi og veiddust 201 laxar á maðkinn.
,,Þetta hlýtur að vera met á hálfum degi,“ segir Jóhann Davíð ennfremur. Eystri Rangá er lang efst þessa dagana og verður það út veiðitímann en núna hafa veiðst 5600 laxar það sem af er. Síðan kemur Ytri Rangá með 1750 laxar og í Miðfjarðará hafa veiðst 1220 laxar. Affallið er með1080 laxa og Urriðafoss í Þjórsá að komast í 960 laxa.
En mokið heldur áfram í Eystri Rangá næstu daga því maðkurinn er mættur á staðinn.
Mynd. Jóhann Davíð Snorrason með lax úr Eystri Rangá sem gaf 260 laxa í gær.