,,Veiðiárnar voru margar eins og stórfljót eftir stanslausar rigningar í fyrradag, það stytti upp aðeins og síðan er aftur byrjað að rigna vel,“ sagði veiðimaður sem var að koma norðan úr landi. Það rigndi og rigndi á stóru svæði á Vesturlandi í fyrradag og spurningin er hvort þetta hleypir lífi í árnar sumar á svæðinu.
Töluverður fiskur er í mörgum þeirra en hann hefur tekið illa hjá veiðimönnum. Og ennþá á lax eftir að ganga eitthvað í árnar þó varla í miklum mæli.
Norðurá hefur gefið 733 laxa og veiðin er betri en í fyrra en mætti sannarlega batna aðeins, Grímsá hefur verið róleg fram til þessaHaukadalsá nnig og svona mætti nokkuð lengi telja.
Haffjarðará hefur verið frábær, Hítará líka góð og Langá er að koma öll til. ,,Það er mikið af laxi í ánni,“ segir Kalli Lú en hann er leisögumaður eins og kunnungt er. Þessar rigningar síðuaga bæta veiðitölurnar vonandi í laxveiðiánum. Það er hellings tími ennþá eftir og það er rétt ágúst ennþá.
Staðan á veðitoppnum er sú að að Eystri Rangá hefur gefið 4600 laxa. Síðan kemur Ytri Rangá með 1560 laxa, svo Miðfjarðará með 1140 laxa og loks Urriðafossinn með 900 laxa.
Mynd. Matthías Þór Hákonarson með flottan lax úr Mýrarkvísl sem er í fínu vatni þessa dagana.