,,Laxinn er byrjaður að veiðast í Efri Haukadalsá og veiddust núna í með stuttum fyrirvara tveir,“ sagði Ásgeir Arnar Ásmundsson er við spurðum um Efri Haukadalsá þar sem lax og bleikja eru byrjuð að gefa sig þessa dagana í nokkru mæli,allavega bleikjan.
,,Flottar bleikjur hafa verið að veiðast síðustu daga, líka þær stærstu fimm pund en mest veiðast þær neðst í ánni. Síðasta holl veiddi 11 bleikjur og þetta er bolta bleikjur. Þetta er að veiðst í ósnum og hyl númer eitt. Framhaldið lofar góðu,“ sagði Ásgeir Arnar ennfremur um veiðina.
Haukadalsá neðri hefur gefið 233 laxa og þegar kíkt var ofan af brúnni fyrir ofan þjóðveginn var torfa að laxi þar. Sumir sæmilega stórir eða eins og einn veiðimaður sagði vel í holdum. Ekkert leiðinlegt að setja í svoleiðis fiska.
Mynd, Flottur lax ur Efri Haukadalsá fyrir nokkrum dögum.