,,Við vorum fjölskyldan fyrir norðan í fríi þar sem ég var m.a. að veiða lax í Skagafirði,“ sagði Daníel Karl Egilsson um veiðiferð fjölskyldurnar fyrir skömmu.
,,Dótturinni Viktoríu varð mikið í mun að fá að veiða líka svo við ákváðum að koma við hjá Víkurlax þegar við vorum stödd á Akureyri. Ég var með allar veiðigræjurnar í bílnum og ætlaði upphaflega að láta hana veiða á flugu. En þegar hún sá ormana var ekki aftur snúið og hún veiddi á maðk og flotholt,“ sag[i Dan’iel Karl.
Dan’iel Karl sagðist hafa séð um að kasta út fyrir hana en hún sá um hitt og dró inn. Fyrri fiskurinn beit á eftir nokkrar mínútur hann var tvö pund. Seinni fiskurinn var stærri fjögur pund. Hann reyndi meira á svo Viktoría naut aðstoðar mömmu sinnar við að draga fiskinn að landi á meðan ég ég náði honum í háfinn.
,,Sú stutta var þvílíkt ánægð með afrakstur dagsins, klappaði fisknum ítrekað þegar hún var búin að halda á honum og vildi fara með hann heim og borða hann. Merkilegast fannst henni þegar við rotuðum fiskinn og spurði hvað ég væri að gera eiginlega. Þegar við komum heim úr fríinu grilluðum við svo fiskinn og borðuðum með kartöflum og kaldri sósu úr grískri jógúrt með kryddjurtum úr garðinum,“ sagði Daniel ennfremur.
Mynd. Daníel Karl Egilsson og dótturinn Viktoria með annan fiskinn.