Katrín G. Whalley nældi sér í Maríulaxinn sinn í austurbakka Hólsár fyrir nokkrum dögum. Í nokkur ár hefur Katrín verið dugleg á háfnum fyrir eiginmann sinn og veiðimanninn snjalla Tómas Skúlason. Núna var sagt stopp hingað og ekki lengra.
,,Ég bara nennti þessu ekki lengur að vera endalaust að háfa fyrir kallinn. Ég fékk smá tilsögn við kastið og setti í þrjá laxa en ég landaði að vísu bara einum. Það var nóg fyrir mig því þetta er fyrsti laxinn minn og það á flugu.Það var líka bara gaman að sjá kallinn á háfnum. Ég lofaði honum að það verður mun meira að gera hjá honum í næsta túr,“ sagði Katrín og hló.
Góðar göngur hafa verið í Eystri Rangá og hefur Hólsá notið góðs af því og menn að setja vel í hann . Það hefur verið mokveiði í Eystri Rangá og áin komið á annað þúsundið. Margir dagar hafa gefið vel yfir 100 laxa.
Mynd. Katrín G Whalley með maríulaxinn sinn úr Eystri Rangá. Mynd Tómas.