Fleiri og fleiri ungir veiðimenn bætast í veiðihópinn þessa dagana. Fjölskyldur fara saman að veiða og ungir veiðimenn fá delluna sem er hið besta mál. Við þurfum fleiri veiðimenn á öllum aldrei til að renna fyrir fisk enda útiveran er verulega góð.
Veigar Berg veiddi sinn fyrsta fisk í Vífilsstaðavatni um helgina og endaði með þrjá flotta fiska. Mikil gleði og gaman, stoppaði meðal annars gönguhóp til að tilkynna um að hann hefði veitt alla þrjá en pabbi engan.
Myndir. Fjör við Vífillstaðavatn um helgina.