,,Það er nokkrir að veiða hérna og ég veiddi einn rétt áðan í Stöðvarhylnum. Það eru komnir 6 fiskar á land,“ sagði Jón Þór Sigurðsson við Varmá snemma í morgun en margir fóru til veiða á fyrsta degi og veiðin góð miðað við aðstæður. Veiðimenn sem við heyrum í voru sammála um að veðurfarið væri farið að versna verulega og einhverjir komnir í pásu um stund.
,,Já, það eru komnir nokkrir fiskar úr Steinsmýravötnum og þeir bræðurnir Hrafn og Rikk Jónssynir fengu þá fyrsta í morgun,“ sagði Sævar Sverrisson við vötnin snemma í morgun.
Ég læt það vera með veðurfarið. Það er mikil vindur og erfitt að kasta flugunni. Vötnin hafa aðeins gruggast og helvíti hvasst orðið. Það hafa veist fimm fiskar og þeir stærstu um 5 pund,“ sagði Sævar ennfremur.
,,Þetta gekk ágætlega hjá okkur en við fengum þrjá fiska og sá stærsti var var 7.6 kg staðbundinn risi sem tók Black Ghost,“ sagði Jóhannes Hinriksson við Ytri Rangá í morgun.
,,Núna er orðið mjög hvasst og kalt og við hættir að veiða í bili. Veðurfarið verður vonandi skárra á morgun. Eigum nokkra góða staði eftir,“ sagði Jóhannes í lokin.
Fyrsta bleikjan er komin í Búðará og fínir birtingar fengust í Leirá í morgunsárið hjá Stebba og Hörpu.
Mynd.
Jón Þór Sigurðsson með einn fyrsta úr Varmá í morgun.
Mynd.
Hrafn og Rikki Jónssynir með fyrstu fiskana úr Steinsmýrarvötnum.
Mynd.
Jóhannes Hinriksson með bolta urriða úr Ytri Rangá í morgun.