,,Þetta kom á óvart að fá þessi verðlaun og gaman að sonurinn fékk líka silfurmerki,“ sagði Bjarni Júlíusson fyrrverandi formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur en hann var sæmdur gullmerki Stangaveiðifélags Reykjavikur í gærkveldi á aðalfundi félagsins.
Við sama tilefni var Júlíus Bjarni Bjarnason, sonur Bjarna, var sæmdur silfurmerki. Þess má geta að aðeins hafa verið 19 aðilar verið sæmdir gullmerki félagsins á þeim 80 árum sem félagið hefur starfað.
Aðalfundurinn var hefbundinn og mættum 90 manns á fundinn. Þeir sem náðu kjöri til stjórnar til tveggja ára voru þeir Halldór Jörgensson, Trausti Hafliðason og Hannar Pétursson. Jón Þór Ólafsson er áfram formaður félagsins en en enginn og bauð sig fram á móti honum.
Mynd. Bjarni Júlíusson var sæmdur gullmerki Stangaveiðifélags Reykjavíkur og sonur hans Júlíus Bjarni Bjarnason silfurmerki félagsins. Mynd Sigurjón Bjarni.