Viltu æfa þig að kasta með flugukaststöng við góðar aðstæður áður en þú heldur á bakkann í vor/sumar? Þá er þetta tækifærið. Stangveiðifélag Akureyrar býður félagsmönnum sínum sem og öðru áhugafólki um fluguköst að koma í Íþróttahöll Akureyrar fjóra sunnudaga í febrúar og mars og æfa sig að kasta með flugustöng.
,,Já, taktu flugustöngina þína með eða fáðu hana lánaða hjá okkur,“ segir Guðrún Una Jónsdóttir, formaður Stangaveiðifélags Akureyrar, um flugukastæfingar sem í boði verða á Akureyri á næstunni.
,,Vanir flugukastarar verða á staðnum sem eru tilbúnir til að leiðbeina ef á þarf að halda. Þetta er hugsað bæði fyrir þá sem vilja skerpa á köstunum sínum og þá sem eru að byrja í sportinu.“
,,Við vonumst eftir að sjá sem flesta en þess má geta að aðgangur að námskeiðunum er ókeypis. Alls fjögur skipti eru í boði, 9.febrúar,23.febrúar,8.mars og 15.mars. Allir tímarnir hefjast klukkan 12,“ segir Guðrún Una sem bíður spennt eftir næsta veiðitíma eins og fleiri veiðimenn.
Og hvað er þá betra en æfa köst og heyra kannski eina veiðisögu frá síðustu sumrum.