fbpx
Laugardagur 23.nóvember 2024

Varla fugl að fá um helgina á Holtavörðuheiðinni

Gunnar Bender
Sunnudaginn 10. nóvember 2019 19:44

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veðurfarið er orðið stórskrítið og ekki batnar það með árunum. Það verður alltaf hlýrra og hlýrra með hverju árinu og  minna um snjó allavega hérna á suður og vesturlandinu og víða líka.

Á Holtavörðuheiðinni á föstudaginn var smá föl. Á laugardeginum hafði hún minnkað verulega og horfið alveg neðar í Norðurárdalnum. Enda var hitastigið 5 stig.

Allt er að breytast því miður og veiðin á heiðinni um helgina var lítil sem enginn. Þeir veiðimenn  sem við ræddum við höfðu aðeins séð einn og einn fugl en ekkert fengið neitt margir hverjir. Fréttir voru af því að veiðimenn hafi reyndar verið að fá rjúpur á Öxnadalsheiðinni rétt fyrir myrkur.

Það var rætt við allavega 20 veiðimenn og allstaðar var sama sagan. Lítið að sjá en góður labbitúr, það er kannski allt í lagi en ekki til lengdar helgi eftir helgi. Fyrsta helgin  var ágæt á Holtavörðuheiðinni þessi var slöpp.  Svona er bara veiðiskapurinn en göngutúrinn er góður.

 

Mynd. Á Holtavörðuheiðinni um helgina. Mynd G.Bender

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

Hversu lengi getur þú staðið á öðrum fæti? – Getur varpað ljósi á hvort þú eldist of hratt

Hversu lengi getur þú staðið á öðrum fæti? – Getur varpað ljósi á hvort þú eldist of hratt
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Byrjunarlið Manchester City og Tottenham – De Bruyne á bekknum

Byrjunarlið Manchester City og Tottenham – De Bruyne á bekknum
Pressan
Fyrir 4 klukkutímum

Þetta gerist ef þú fjarlægir ekki köngulóarvef

Þetta gerist ef þú fjarlægir ekki köngulóarvef
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Zirkzee sagður vilja komast burt sem fyrst

Zirkzee sagður vilja komast burt sem fyrst