Sigurður Héðinn fagnaði útgáfu bókar sinnar, Af flugum, löxum og mönnum, í Veiðiflugum í vikunni. Fjölmargir veiðimenn lögðu leið sína í Veiðiflugur til að fagna með Sigga, sem áritaði bókina sína fyrir þá sem fjárfestu í eintaki.
Bókin er einstaklega glæsileg og innihaldið svíkur engan sem hefur áhuga á laxveiði. Leyfum myndunum að tala sínu máli.