,,Veiðin gengur vel hjá okkur og allir að fá góða fiska,“ sagði Gunnar Blöndal við Ystu Vík í gær þegar veiðimenn á öllum aldri renndu fyrir fisk þar og veiðin var flott, vænir regnbogafiskar.
,,Hann er á,“ sagði Davíð Mar Andrésson sem var að veiða fyrsta fiskinn á ævinni.
Aðstaðan er til fyrirmyndar, þarna er fiskurinn vænn og gert að aflanum fyrir alla. Og fiskurinn í tökustuði.
Mynd: Frændurnir Helgi Þór Andrésson, Árni Rúnar Einarsson og Davíð Mar Andrésson með flotta fiska við Ystu Vik við Akureyri. Mynd María Gunnarsdóttir.