,,Veiðin gengur vel hjá okkur í veiðifélaginu Vöðlunum í Laxá í Leirársveit en við fengum rigningu í gær og það skipti öllu fyrir okkur,“ sagði Þórdís Lóa Þórhallsdóttir sem var við veiðar í ánni ásamt vöskum hópi veiðikvenna sem voru búnar að setja í þó nokkra laxa á fluguna.
,,Það bættist við töluvert af laxi í síðasta flóði enda stórstraumur. Þetta er hress hópur veiðikvenna hérna við veiðar en við við höfum ekki veitt hérna áður en í Aðaldalnum, Norðurá og fleiri stöðum i gegnum árin,, sagði Þórdís ennfremur.
,,Þetta var skemmtileg taka og gaman. Það virðist vera mikið af fiski hérna í Miðfellsfljótinu,“ sagði Brynhildur Barðadóttir sem var nýbúinn að landa laxi í Miðfellsfljótinu og það virðist vera mikið af fiski, allavega var hann að stökka á mínútu fresti en tók ekki mikið.
Mynd. Fjör við Miðfellsfljótið í gær og fiskur að stökkva á mínútu fresti. Mynd G.Bender.