,,Ég ætla að halda mínu árlegu tónleika í kirkjunni í Nesi í Aðaldal fyrir sveitina á föstudagskvöldið. Aðgangur að tónleikunum verður ókeypis,“ segir Bubbi Morthens sem er að halda í sinn fyrsta veiðitúr á sumrinu i Laxá í Aðaldal.
Þar um slóðir hefur Bubbi veitt nokkra stóra. Fyrir þremur árum veiddi fjóra laxa yfir 20 pundin á Nessvæðinu í einum og sama veiðitúrnum.
Bubbi segist spenntur að kasta flugunni fyrir væna laxa í Laxá í Aðaldal og ekki skemmir fyrir að KR er á toppnum núna þegar hann er að hefja veiðiskapinn.
Margir eiga eflaust eftir að leggja leið sína á tónleikana í kirkjunni í Nesi til að hlusta á hann syngja og spila. Við skulum sjá hvernig veiðin gengur hjá Bubba.