,,Það er ekkert að hætta að rigna, Langáin er tvöföld í vatni þessa dagana og á morgun spáð ausandi rigningu á svæðinu, en laxinn er að ganga,“ sagði Karl Lúðvíksson er við heyrðum aðeins í honum í gærkveldi og sama streng taka fleiri veiðimenn við veiðiárnar sem eru barmafullar að vatni. Og fiskurinn heldur sig ekki á þessum hefðbundnu stöðum í svona miklu vatni.
Trausti Hafliðason ritstjóri Viðskiptablaðsins er staddur í grenjandi rigningu við Haukadalsá í Dölum og segist hafa séð lítið af fiski en helling af vatni.
En laxinn er að mæta en vatnið er mikið. Elliðaánum eru komnir á land um 80 laxar sem verður að teljast mjög gott. Enda hefur fiskur verið að skríða uppá hverju flóði.
Mynd. Erfitt að finna laxinn í miklu vatni þessa dagana. Mynd María Gunnarsdóttir.