Guðrún Brá Björgvinsdóttir hefur leik í dag á Turfman Allerum Open sem er hluti af LET Access mótaröðinni – sem er næst sterkasta atvinnumótaröð Evrópu í kvennaflokki.
Íslandmeistarinn úr Keili hefur leik um hádegi í dag og er hægt að fylgjast með skorinu hér.
Alls eru 125 keppendur frá 23 þjóðum á mótinu sem fram fer á Allerum Golf Club sem er rétt um 20 mínútum frá Helsinborg í Svíþjóð.
Mótið er sameiginlegt verkefni hjá sænsku atvinnumótaröðinni og LET Access mótaröðinni.
Það eru aðeins tvö mót eftir á LET Access mótaröðinin eftir að þessu móti lýkur. Keppni um fimm efstu sætin á stigalistanum gefa keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni á næsta tímabili. Sæti 6-20 á stigalistanum tryggja keppnisrétt á lokaúrtökumótinu desember sem fram fer í Marokkó.