Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur lék á tveimur undir pari á fyrsta keppnisdeginum á Holtsmark Open í Danmörku.
Mótið er hluti af Nordic atvinnumótaröðinni sem er í þriðja styrkleikaflokki í Evrópu. Guðmundur Ágúst lék fyrsta hringinn á -2 eða 70 höggum. Hann er í 23. sæti en keppni hófst í gær og eru leiknir þrír hringir.
Guðmundur Ágúst er í 25. sæti á stigalista mótaraðarinnar en hann hefur leikið á 16 mótum á tímabilinu.
Það er að miklu að keppa að vera á meðal 5 efstu á stigalistanum. Fimm efstu sætin tryggja keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni – næst sterkustu mótaröð Evrópu.
Þess má geta að Axel Bóasson úr Keili stóð uppi sem stigameistari á síðasta tímabili á þessari mótaröð og fékk keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni.