Andrea Bergsdóttir úr GKG hefur leik í dag á Opna breska áhugamannamótinu fyrir kylfinga 18 ára og yngri. Í dag er leikinn höggleikur og komast 64 efstu áfram í holukeppnina sem tekur við í framhaldinu.
Andrea er búsett í Svíþjóð en hefur á undanförnum misserum leikið fyrir stúlknalandslið Íslands og hún verður í A-landsliði kvenna sem keppir á Heimsmeistaramóti áhugakylfinga á Írlandi í lok ágúst.
Mótið er eitt sterkasta áhugamannamót heims í þessum aldursflokki. Mótið á sér langa sögu en fyrst var keppt árið 1919. Margir þekktir kylfingar hafa sigrað á þessu móti. Má þar nefna Georgia Hall frá Englandi sem sigraði nýverið á Opna breska meistaramótinu.
Mótið fer fram á Ardglass vellinum rétt suður af Belfast á Norður-Írlandi.