Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili og Berglind Björnsdóttir úr GR eru báðar á meðal keppenda á Lavaux mótinu sem fram fer í Golf de Lavaux, Puidoux, í Sviss.
Mótið er hluti af LET Access mótaröðinni sem er næst sterkasta mótaröð Evrópu hjá atvinnukylfingum í kvennaflokki.
Guðrún Brá lék fyrsta hringinn á 75 höggum eða +3. Berglind lék fyrsta hringinn á 76 höggum eða +4.