Gísli Sveinbergsson úr Keili er í toppbaráttunni eftir fyrsta hringinn á St Andrews Links Trophy. Mótið er eitt sterkasta áhugamannamót veraldar og á meðal þeirra sem hafa sigrað á þessu móti eru Ernie Els, Lee Westwood, Trevor Immelman, Geoff Ogilvy, Padraig Harrington, Justin Rose og Rory McIlroy.
Þrír íslenskir keppendur eru á þessu móti.
Gísli lék á 69 höggum eða -2 og er hann í 7. sæti af alls 144 keppendum. Olly Huggins frá Englandi er efstur á 67 höggum. Keppt var á nýja vellinum á St. Andrews í dag en einnig er keppt á hinum enda sanna St. Andrews velli þar sem Opna breska meistaramótið fer reglulega fram.
Aron Snær Júlíusson úr GKG er í 41. sæti á pari vallar eða 72 höggum og Bjarki Pétursson úr GB er í 113. sæti á 76 höggum eða +4.
Aðeins kylfingar með 0 eða lægra í forgjöf komast inn á þetta sterka áhugamannamót.
Mótið er eins og áður segir eitt af sterkustu áhugamannamótum veraldar og aðeins Opna breska áhugamannamótið er hærra metið á heimslistanum (WAGR).