Þrír kylfingar úr Keili eru við keppni á East of Ireland Amateur Open meistaramótinu. Mótið er tvískipt en keppt er í undir 21 árs flokki – samhliða mótinu sem er fyrir alla aldurshópa.
Rúnar Arnórsson er á -4 undir pari þegar keppni er hálfnuð (70-70). Rúnar er sem stendur í 13. sæti. Leiknar verða 36 holur á lokahringnum.
Henning Darri Þórðarson er á +2 samtals og komst ekki í gegnum niðurskurðinn í almenna flokknum.
Hann lék á +2 samtals (75-71). Vikar Jónasson er úr leik en hann lék á +8 samtals (77-75).