Stemningin á kosningavöku Ken Paxton, dómsmálaráðherra Texasríkis, súrnaði hratt í nótt þegar ljóst varð að demókratinn James Talarico hefði haft betur í baráttunni um öldungadeildina. Texas hefur lengi verið öruggt vígi Repúblikana en í nótt missti flokkurinn bæði öldungadeildarsæti sem og embætti ríkisstjóra.
Segir í frétt The Texas Tribune um kosningavökuna:
„Vantrú ríkti í salnum þegar úrslit kosninganna bárust kosningavöku Kens Paxtons. Fólk hrópaði: „NEI!“ Fólk greip upp símana og hristi höfuðið. Þegar FoxNews hafi lýst Talarico sigurvegara var slökkt á skjávarpanum, eins og fólk vildi hvorki sjá né sætta sig við það sem var að eiga sér stað.
Lagið „Thunderstruck“ með AC/DC var spilað mjög hátt, næstum eins og það hefði verið hækkað í botn til að kæfa vonbrigðin yfir ósigrinum.“
Dóttir Paxtons flutti svo bæn og ávarp og eftir það óskaði Paxton mótframbjóðanda sínum til hamingju og fór yfir 12 ára feril sinn sem dómsmálaráðherra Texasríkis. Hann sagðist þakklátur fyrir fólkið sem hann hefur starfað með á þessum árum og þær minningar sem hann tekur nú með sér.
„Ég elska Texas. Ég mun alltaf elska Texas,“ sagði Paxton og hét því að halda áfram að berjast fyrir land sitt og sannfæringu.
Seinast fengu Demókratar öldungadeildarþingmann kjörinn í Texas árið 1988 þegar Lloyd Bentsen var endurkjörinn í fjórða sinn, en hann hafði haldið sætinu allt frá árinu 1971. Samflokksmaður hans, Bob Krueger, tók svo við sætinu þegar Bentsen sagði af sér árið 1993 til að taka við sem fjármálaráðherra Bandaríkjanna en kjósendur höfnuðu Krueger í þingkosningum nokkrum mánuðum síðar. Eftir það hafa bæði sæti Texas í öldungadeildinni verið rauð.
Paxton skellti sér til Ísland í sumar með viðhaldi sínu og vakti ferðin töluverða athygli þar sem slíkt ferðalag þótti ekki frambjóðenda sæmandi. Paxton er þó skilinn að borði og sæng.
Talsmaður demókrata sagði um ferðina:
„Paxon ætti þó ekki að hafa of miklar áhyggjur – hann mun hafa allan tímann í heiminum fyrir lúxusferðir með viðhaldinu eftir að hann tapar kosningunum í nóvember.“
Sjá athugasemd: Umdeildur MAGA-liði skellti sér til Íslands með viðhaldinu og er harðlega gagnrýndur