Pressan

Gríðarlegt uppnám varð í sjónvarpssal en ekki var allt sem sýndist

Mynd
Bradley Walsh stýrði þættinum sem varð miklu dramatískari en margir áttu von á. Mynd: Skjáskot/Youtube.

Töluvert uppnám varð meðal áhorfenda í sjónvarpssal og keppenda í nýjum þætti sem frumsýndur var í bresku sjónvarpi á sunnudagskvöld. Uppnámið varð eftir að keppandi í þættinum lagði eigið fé undir og tapað því. Mótmæltu bæði hann, kærasta hans og áhorfendur hástöfum og var keppandanum á endanum fylgt út úr myndverinu. Þátturinn vakti töluverða athygli en greint var loks frá því að um sviðsetningu hafi verið að ræða til að varpa ljósi á hætturnar við fjárhættuspil.

Þátturinn var sýndur á Channel 4 og heitir Million Pound Shot en stjórnandi hans er Bradley Walsh, sem er þekktur leikari og sjónvarpsmaður í Bretlandi.

Þátturinn var kynntur þannig að hann gengi út á spurningaleik þar sem keppendur gætu unnið allt að eina milljón punda (um 163 milljónir íslenskra króna) með því að leggja sína eigin peninga undir.

Keppandi, ungur maður að nafni Reece, virtist hafa tapað þúsundum punda af sínum eigin fjármunum. Bæði hann, kærasta hans sem var meðal áhorfenda og fleiri áhorfendur komust auðsjáanlega í töluvert uppnám og var parinu fylgt út úr sjónvarpssal.

Eftir uppnámið var farið í auglýsingahlé og að því loknu upplýsti Walsh áhorfendur um að sviðsetningu hefði verið að ræða til að varpa ljósi á þær aðferðir sem veðmálafyrirtæki notuðu.

Samt raunverulegt

Kepppandinn, kærastan, starfsmaðurinn sem fylgdi þeim út og einn áhorfandi í sjónvarpssal voru leikarar en aðrir áhorfendur í salnum voru ekki meðvitaðir um að atburðirnir væru sviðsetning.

Walsh útskýrði að með þessu hafi verið ætlunin að sýna hvernig veðmálafyrirtæki hvettu fólk til að spila sífellt meiri fjárhættuspil og eyða meira fé.

Keppandinn Reece var þar með skálduð persóna en hann var þó byggður á raunverulegum manni sem sökk í fen spilafíknar.

Rætt var við umræddan mann í þættinum en hann heitir Patrick og á 13 árum stofnaði hann til skulda að andvirði um 250.000 punda( um 40 milljónir íslenskra króna) vegna fjárhættuspila.

Walsh sagði í færslu á Instagram eftir sýningu þáttarins að hann hafi talið mikilvægt að varpa ljósi á þetta erfiða viðfangsefni og þess vegna hefði hann tekið þátt í sviðsetningunni. Hann þakkaði sérfræðingum og samtökum sem beita sér fyrir hag spilafíkla fyrir aðstoðina við gerð þáttarins.

Forsvarsmaður einna slíkra samtaka, sem rætt var við í þættinum, sagði að erfitt hefði verið að horfa upp á atburðarásina þótt hann hafi vitað að hún væri sviðsett. Þetta hafi gefið raunsanna mynd af því hvernig veðmálaiðnaðurinn geri fólk háð fjárhættuspilum og þeim skaða sem þetta valdi viðkomandi og fjölskyldum þeirra.