Bróðurdóttir Donalds Trumps Bandaríkjaforseta veit fjölskylduleyndarmál um forsetann sem hún óskar þess að hún hefði aldrei heyrt. Þetta kom fram í hlaðvarpinu SiriusXM á dögunum.
Mary Trump segist hafa heyrt leyndarmálið frá föðursystur sinni, Maryanne Trump, en hún segir það varða eina helstu þráhyggju forsetans.
„Hún sagði að hann væri graðasti maður sem hún hafði nokkru sinni heyrt,“ segir Mary en Maryanne var eldri systir forsetans. Mary var aðeins á þrítugsaldri þegar hún heyrði þetta, en svona hluti vilja fæstir vita um nánar fjölskyldumeðlimi. Mary rekur í viðtalinu að Trump hafi alla tíð verið óvenjulega upptekinn af útliti annarra.
„Hann vill tengja sjálfan sig við aðdráttarafl, því hann er ekki aðlaðandi sjálfur, eða það þykir mér að minnsta kosti ekki sjálfri.“
Trump-systkinin voru fimm. Elst var Maryanne, næstur kom Fred Jr, svo Elizabeth, Donald og Robert. Aðeins Donald Trump og eldri systir hans Elizabeth eru enn á lífi í dag.
Mary, sem er dóttir Fred Jr, segir að í þau fáu skipti sem Trump hrósaði eldri bróður sínum hafi það verið fyrir útlitið.
Telur Mary þó að það sé farið út fyrir allan þjófabálk hversu oft Trump er nú farinn að leyfa sér að gera athugasemdir við útlit annarra á opinberum vettvangi. Á kosningafundum hafi hann ítrekað gert athugasemdir við líkama annarra, þar með talið lýsti hann því á kosningafundi í Flórída að hann hefði verið að stara á rassinn á öldungadeildarþingmanninum Jons Husted. Lýsti Trump yfir velþóknun á hversu vöðvastæltur rassinn var. Trump hafi svo hrósað heilbrigðisráðherranum, Robert F. Kennedy, fyrir hraustlegan líkama sinn og tjáð sig um hinn íturvaxna rappara Nicki Minaj sem er mikil stuðningskona forsetans.
Mary er klínískur sálfræðingur og að hennar mati er augljóst hvað hrjáir forsetann.
„Þetta er það sem við köllum hömluleysi og það er merki um að ekki sé allt með felldu hvað viðkemur vitrænni getu hans“
Vísbendingarnar væru augljósar og það væri galið að Rebúlíkanaflokkurinn væri að gera lítið úr þessum einkennum.