Pressan

Það tók Trump enga stund að klæða sig í hrekkjavökubúninginn

Mynd
Donald Trump Bandaríkjaforseti

Donald Trump Bandaríkjaforseti var ekkert að flækja málin í gær þegar hann hélt hrekkjavökusamkvæmi með frumskógarþema á heimili sínu í Flórída, Mar-a-Lago. 

Þegar forsetinn bauð gesti sína velkomna opnaði hann jakkann sinn, benti á sjálfan sig og sagði: 

„Ég kom sem Donald Trump. Ég hafði ekki tíma til að gera mig tilbúinn.“ 

Hann sagði svo við fréttamann: „Fólk eyðir miklum tíma og peningum; ríkt fólk, það eyðir níu klukkustundum í að gera sig til. Ég hafði 10 mínútur, svo ég kom sem Donald Trump í kvöld“