Pappírsrör, sem víða hafa komið í stað hefðbundinna plaströra í nafni umhverfisverndar, koma mun verr út en plaströr á ýmsum sviðum í nýrri rannsókn sem stjórnvöld í Suður-Kóreu létu gera. Niðurstöðurnar vekja spurningar um hvort þær breytingar sem gerðar hafa verið á notkun einnota drykkjarröra hafi í raun skilað tilætluðum árangri.
Suðurkóreski fréttamiðillinn The Korea Herald greinir frá niðurstöðunum, en í rannsókninni voru umhverfisáhrif fjögurra tegunda drykkjarröra borin saman. Um var að ræða hefðbundin plaströr, pappírsrör, lífbrjótanleg plaströr og rör úr lífrænt framleiddu pólýetýleni.
Vísindamennirnir skoðuðu allan lífsferil varanna, allt frá framleiðslu hráefna til förgunar, og mátu áhrif þeirra út frá sextán mismunandi umhverfisþáttum.
Pappírsrörin komu verr út
Niðurstöðurnar sýndu að pappírsrör mældust með 6,33 sinnum meiri krabbameinstengd áhrif á heilsu manna en hefðbundin plaströr. Þá voru áhrif þeirra á súrnun umhverfisins rúmlega tvöfalt meiri.
Rétt er að taka fram að krabbameinstengdu áhrifin byggjast á reiknilíkani sem metur umhverfis- og heilsuáhrif yfir allan lífsferil vörunnar. Niðurstöðurnar þýða því ekki að fólk sé í aukinni krabbameinshættu við það eitt að drekka úr pappírsrörum.
Rör úr lífrænt framleiddu pólýetýleni, svokölluðu bio-PE, komu enn verr út. Krabbameinstengd áhrif þeirra mældust rúmlega sextán sinnum meiri en hefðbundinna plaströra og áhrifin á súrnun umhverfisins tæplega sexfalt meiri.
Hefðbundin plaströr höfðu minnst umhverfisáhrif í tíu af þeim sextán flokkum sem rannsakaðir voru, meðal annars þegar kom að loftslagsbreytingum, svifryki og eituráhrifum á heilsu manna.
Vilja að fólk biðji sérstaklega um rör
Stjórnvöld í Suður-Kóreu innleiddu takmarkanir á notkun plaströra á kaffihúsum og veitingastöðum árið 2022. Ári síðar var hins vegar ákveðið að fresta framkvæmd takmarkananna um óákveðinn tíma eftir kvartanir almennings og efasemdir um árangur þeirra.
Í rannsókninni kom einnig fram að erfitt væri að endurvinna drykkjarrör, óháð því úr hvaða efni þau eru framleidd. Smæð þeirra gerir flokkunarstöðvum erfitt fyrir og húðun og límefni geta torveldað endurvinnslu enn frekar.
Þá kom fram í könnun meðal rúmlega þúsund einstaklinga að 87,5 prósent þeirra kusu hefðbundin plaströr fremur en aðrar tegundir.
Vísindamennirnir mæla með því að kaffihús og veitingastaðir hætti að afhenda einnota drykkjarrör sjálfkrafa. Þess í stað ættu viðskiptavinir aðeins að fá rör ef þeir óska sérstaklega eftir þeim.
Þótt niðurstöðurnar varpi nýju ljósi á umhverfisáhrif mismunandi drykkjarröra ber að hafa í huga að útreikningarnir byggjast meðal annars á suðurkóreskum forsendum um meðhöndlun úrgangs. Ekki er því sjálfgefið að niðurstöðurnar yrðu nákvæmlega þær sömu við íslenskar aðstæður.