Rússar eru sagðir vinna að þróun nýs kjarnorkuvopns sem ætlað er til notkunar í geimnum. að sprengja braut um jörðu og gæti lamað eða eyðilagt þúsundir gervihnatta í einu.
Daily Mail greinir frá þessu og vísar til nýrrar skýrslu leyniþjónustustofnunar bandaríska varnarmálaráðuneytisins (DIA), sem birt var í vikunni.
Í skýrslunni kemur fram að Rússar vinni að þróun gervihnattar sem geti borið kjarnorkuvopn. Slíkt myndi ganga gegn alþjóðlegum sáttmála frá árinu 1967, sem bannar að kjarnorkuvopnum og öðrum gereyðingarvopnum sé komið fyrir á braut um jörðu.
Gæti lamað þúsundir gervihnatta
Að sögn DIA gæti kjarnorkusprenging í geimnum valdið gríðarlegri röskun á starfsemi gervihnatta víða um heim. Sprengingin myndi mynda öflugan rafsegulpúls sem gæti truflað eða eyðilagt rafeindabúnað í gervihnöttum í mikilli fjarlægð frá sprengjustaðnum.
Afleiðingarnar gætu jafnframt orðið langvarandi.
„ Kjarnorkusprenging í geimnum gæti einnig skilið eftir sig mikla geislun sem héldist í kringum jörðina árum saman og gæti valdið skemmdum á gervihnöttum löngu eftir sprenginguna,“ segir í skýrslunni.
Gervihnettir gegna lykilhlutverki í nútímasamfélagi og eru meðal annars notaðir fyrir fjarskipti, veðurspár, staðsetningarkerfi og ýmiss konar fjármálaþjónustu. Talið er að um 18 prósent af vergri landsframleiðslu Bretlands byggist með einum eða öðrum hætti á þjónustu sem tengist gervihnöttum.
Óttast árásir á borgaralega gervihnetti
Paul Godfrey, sem áður fór fyrir geimherstjórn breska hersins, segir ógnina fara vaxandi. Hann varar sérstaklega við því að borgaralegir gervihnettir séu berskjaldaðir fyrir árásum.
Í samtali við hlaðvarp The Times sagði hann almenning gera sér litla grein fyrir því hversu háð nútímasamfélag væri tækni sem byggist á gervihnöttum. Truflanir á slíkri þjónustu gætu haft alvarleg áhrif á daglegt líf milljóna manna.
Godfrey nefndi meðal annars evrópska Galileo-leiðsögukerfið sem hugsanlegt skotmark.
Breskir herforingjar hafa jafnframt sakað Rússa um að hafa þegar beitt ógnandi aðferðum í geimnum. Í maí síðastliðnum hafi fimm rússneskir hergervihnettir meðal annars framkvæmt óvenjulegar hreyfingar nærri tveimur finnskum gervihnöttum.
Pútín sendir Vesturlöndum viðvörun
Fréttirnar berast á sama tíma og Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur enn á ný sent Vesturlöndum harða viðvörun.
Á blaðamannafundi í Moskvu á fimmtudag sagðist hann ekki vilja stríð við Evrópu en lagði áherslu á að Rússar væru reiðubúnir ef til átaka kæmi.
„Við erum tilbúnir, en við viljum ekkert stríð við Evrópu. Ef einhver vill það, þá getur sá hinn sami undirbúið sig,“ sagði Pútín.
Hann bætti við að ef átökin gengju of langt yrðu engir sigurvegarar.
Bandaríkin og Bretland hafa á sama tíma aukið viðbúnað sinn vegna vaxandi ógnar í geimnum. Bandaríkin hafa greint frá því að þau hafi komið vopni fyrir á braut um jörðu, en Bretar hafa stofnað sérstaka hersveit sem ætlað er að verja breska hagsmuni í geimnum.