Pressan

Komust inn í geymslu Thomas Markle í Mexíkó og höfðu umsvifalaust samband við lögreglu

Mynd

Breska dagblaðið Daily Mail hefur gert bandarísku alríkislögreglunni FBI viðvart eftir að blaðamenn þess fundu mikið magn af grunsamlegu efni í geymslu í Mexíkó sem Thomas Markle, faðir Meghan Markle, hertogaynju af Sussex, hafði á leigu um árabil.

Þar á meðal voru ljósmyndir, bækur og tímarit sem tengjast kynferðislegri misnotkun barna. Í geymslunni fundust einnig ljósmyndir af nöktum stúlkum sem virtust sumar mjög ungar.

Greint var frá þessu á vef Daily Mail í morgun.

Fundurinn er nýjasta vendingin í máli sem hefur vakið mikla athygli undanfarna daga. Áður hafði Thomas Markle yngri, sonur hins 82 ára gamla Markle, tilkynnt lögreglunni á Filippseyjum að hann hefði fundið hundruð, jafnvel þúsundir, mynda af kynferðislegri misnotkun barna meðal eigna föður síns þar í landi. Lögregla hóf í kjölfarið rannsókn á málinu.

Geymslan hafði staðið ónotuð

Samkvæmt Daily Mail tók Markle geymsluna, sem er í bænum Rosarito skammt frá landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna, á leigu árið 2017. Hann er sagður hafa hætt að greiða leigu árið 2024 og fengu blaðamenn aðgang að henni.

Í geymslunni voru um 20 kassar með ýmsum persónulegum munum. Þar fundust meðal annars bækur og tímarit með kynferðislegu efni sem tengist börnum, auk fjölda ljósmynda.

Þá fundust yfir 50 myndbandsspólur, sjö harðir diskar, myndavélar og minnislyklar. Ekki liggur fyrir hvað leynist á þessum tækjum.

Blaðamenn fundu einnig leiðbeiningar um hugbúnað sem hægt er að nota til að eyða gögnum af hörðum diskum, auk blaðs þar sem orðin „DARK WEB“ höfðu verið skrifuð ásamt nokkrum vefslóðum.

Hafnar ásökununum

Thomas Markle hefur neitað staðfastlega að efnið sem fannst á Filippseyjum sé í hans eigu. Hann hefur viðurkennt að hafa greitt fyrir kynlíf þar í landi en fullyrðir að hann hafi aldrei átt kynferðislegt samneyti við einstakling undir 18 ára aldri.

Sonur hans hefur hins vegar lýst því yfir að hann hafi slitið öllum samskiptum við föður sinn eftir það sem hann segist hafa fundið.

Meghan Markle hefur einnig tjáð sig um málið og sagt að hún hafi þegar árið 2019 fengið upplýsingar um alvarlegar ásakanir á hendur föður sínum.