Hörmulegt slys varð við strendur Flórída í Bandaríkjunum síðastliðinn sunnudag þegar 31 árs gamall tveggja barna faðir drukknaði eftir að hann reyndi að koma mávi til bjargar.
Maðurinn hét William „Stone“ Romberg og var hann við veiðar ásamt vinum sínum nærri Carillon Beach, um 35 kílómetra vestur af Panama City, þegar slysið varð.
Bandaríska tímaritið People greinir frá málinu.
Samkvæmt upplýsingum á söfnunarsíðunni GoFundMe, sem stofnuð hefur verið til stuðnings fjölskyldu Rombergs, hafði mávur flækst í veiðilínu hans. Hann brá því á það ráð að stökkva út í sjóinn þar sem hann reyndi að losa fuglinn. Romberg reyndi að synda aftur í land en sterkur straumur hreif hann með sér og drukknaði hann í kjölfarið.
Romberg lætur eftir sig eiginkonu, Taylor, og tvær ungar dætur þeirra, hina þriggja ára Hadley og eins árs Lainey.
Hann starfaði sem yfirmaður strandþjónustu fyrirtækisins La Dolce Vita við Carillon Beach og var að sögn afar vel liðinn í samfélaginu.
„Stone var mikils metinn hluti af fjölskyldunni okkar. Hans verður minnst fyrir góðmennsku, dugnað og hversu fús hann var alltaf til að rétta öðrum hjálparhönd,“ segir í minningarorðum fyrirtækisins La Dolce Vita þar sem Romberg starfaði.
Tvær fjársafnanir hafa verið settar af stað til stuðnings eiginkonu hans og dætrum. Viðbrögðin hafa verið gríðarleg en á fimmtudag höfðu samtals safnast meira en 300 þúsund Bandaríkjadalir, jafnvirði um 36 milljóna íslenskra króna.