Maður á áttræðisaldri hefur verið úrskurðaður í stofufangelsi á Ítalíu, grunaður um að hafa myrt 74 ára gamlan fatlaðan frænda sinn til að komast yfir arf hans.
Samkvæmt rannsókn ítölsku herlögreglunnar, Carabinieri, í Reggio Emilia er maðurinn talinn hafa skipulagt morðið og notað til þess Berlínarbollu með rjóma til að verða frænda sínum að bana.
Samkvæmt ákærunni, sem fjallað er um á vef La Repubblica, er hinn grunaði 76 ára gamall og var lögráðamaður fórnarlambsins frá árinu 2009, mun hann hafa átt að erfa frænda sinn að öllu leyti. Fórnarlambið dvaldi á hjúkrunarheimili þegar hann lést í júní síðastliðnum og er sagður hafa þjáðst af alvarlegum sjúkdómi sem krafðist þess að hann væri á fljótandi fæði.
Gerandinn er sagður hafa laumað nokkrum Berlínarbollum og rjóma með sér í heimsókn á hjúkrunarheimilið og gaf frænda sínum. Þegar frændinn byrjaði að kafna þá hafi maðurinn farið fram á gang og keypt gosdrykk til að hjálpa honum að skola niður bollunni.
Maðurinn var handtekinn núna í lok október og er grunaður um manndráp. Dómari taldi gæsluvarðhald ekki nauðsynlegt og er honum því haldið í stofufangelsi.