Pressan

Seldu aleiguna fyrir 3,5 ára skemmtiferðasiglingu en svo var þeim vísað frá borði eftir aðeins 17 mánuði

Mynd
Mynd úr safni.

Bandarísk hjón ákváðu að selja allar eigur sínar og sigla um heiminn í langri skemmtisiglingu. Ævintýrinu lauk þó með látum eftir aðeins 17 mánuði, en þau Lynn og Paul Montoya segjast þó ekki sjá eftir neinu.

Hjónin voru búsett í Wyoming áður en þau ákváðu að venda sínu kvæði í kross og halda út á sjóinn. Það er ekki ókeypis að skella sér í ótímabundna skellisiglingu og borguðu hjónin rúmlega 22 milljónir fyrir kátu sína í þeirri trú að þetta yrði heimili þeirra næsta þrjú og hálft árið þar sem þau myndu sjá heiminn og stoppa í rúmlega 400 höfnum.

Eftir 17 mánaða siglingu komu sorgartíðindin. Vegna hækkandi eldsneytisverðs þyrfti að gera hlé á ferðinni. Öllum farþegum var gert að fara frá borði, en skipið var þá statt í Kambódíu.

Lynn og Paul fengu aðeins fáeinar klukkustundir til að pakka öllum eigum sínum. Þau segja í samtali við LadBible að farþegar hafi verið í miklu uppnámi.

„Vantrú, grátur, sorg og svo skellur það á manni að maður er að missa heimili sitt og þarf að pakka öllu niður eða taka með sér það sem maður getur. Við skildum mikið af eigum okkar eftir í káetunni. Við tókum tvær stórar ferðatöskur, tvær minni og bakpoka en þetta voru bara nauðsynjar til svona tveggja vikna.“

Eigandi skipsins, Villa Vie Residence, segir í yfirlýsingu að fyrirtækið þurfi nú að endurmeta stöðuna vegna gífurlegra hækkana á eldsneytisverði. Endurskipuleggja þurfi reksturinn og finna nýjar fjármögnunarleiðir.

Hjónin segja að þegar þau hugsa til baka hafi ýmislegt bent til þess í hvað stefndi. Nokkrum vikum áður en þeim var gert að yfirgefa skipið hafi þau misst aðgang að gervihnattarneti, dagskrá um borð hafi verið breytt og gæðin á matnum hafi snarminnkað. Eins hafi fyrirtækið ítrekað beðið farþega um peninga svo hægt væri að sigla áfram. Hjónin greiddu og telja að um glatað fé sé að ræða.

Þau horfa þó á björtu hliðarnar. Jafnvel þó að ferðinni hafi lokið með þessum hætti sjá þau ekki eftir neinu og hefðu þau vitað að þetta yrði aðeins 17 mánaða sigling hefðu þau samt farið í hana.

Þau hafi heimsótt dásamlega staði og kynnst æðislegu fólki. Það sé vissulega leitt að þau hafi tapað peningunum sem þau fjárfestu í en svona sé lífið bara stundum. Þau halda í vonina um að þeim verði boðið aftur um borð og siglingunni haldið áfram. Þangað til ætla þau að njóta lífsins í Kuala Lumpur.