Pressan

Fjölpóstur til barna í Texas vakti gríðarlega reiði en ekki var allt sem sýndist - Hver sendi bréfin og hvers vegna?

Mynd

Furðulegt mál er nú komið upp í Texas en þar bárust bréf og textaskilaboð til milljón kjósenda sem báru með sér að vera á vegum trans fólks. Bréfin voru stíluð á börn á heimilinu en talið er að þeim hafi verið ætlað að kynda undir reiði í garð trans samfélagsins í aðdraganda þingkosninganna í næstu viku.

Bréfin og skilaboðin virtust við fyrstu sýn vera upplýsingarit á vegum samtakanna Transgender Education Network of Texas (TENT). Sökum þess hafa samtökin nú krafist þess fyrir dómstólum að tvö fyrirtæki verði kölluð til skýrslugjafar, annars vegar fjarskiptafyrirtækið InfoBip sem sendi textaskilaboðin og hins vegar dularfullt einkafélag að nafni Texas Transgender Student Union, sem stóð fyrir fjölpóstinum en fyrirtækið er nýstofnað og ekki er vitað hver stendur á bak við það.

Dómari féllst á kröfu TENT með úrskurði á þriðjudaginn eftir að samtökin útskýrðu að það væri ómögulegt að þau stæðu á bak við fjölpóstinn enda hefðu samtökin hvorki fjárhagslega burði í slíkt né ástæðu til þess að kynda undir reiði með þessum hætti. Bendir allt til þess að blekkingum hafi verið beitt til að kynda undir hatri í garð trans fólks. 

Tengsl við Repúblikana

Eintök fjölpóstsins voru á bilinu 3,6-4,2 milljónir og það var prentsmiðjan Three Z Printing sem sá um prentunina og að óska eftir leyfi fyrir magnpósti. Prentsmiðjan er í eigu íhaldsmannsins Bill Zerrusen en hann og fjölskylda hans eru stoltir styrktaraðilar Repúblikanaflokksins og Donald Trump Bandaríkjaforseta. Eins er fjölskyldan með tengsl við dómsmálaráðherra Texas, Ken Paxton, sem freistar þess nú að ná kjöri í öldungadeild Bandaríkjaþings í kosningunum sem fara fram á þriðjudaginn í næstu viku.

Paxton hefur farið mikinn gegn trans samfélaginu í störfum sínum og kom því meðal annars í gegn að nú telst trans meðferð barna ofbeldi í Texas. Eins hefur Paxton heitið því að sækja til saka þá heilbrigðisstarfsmenn sem veita börnum trans meðferð.

Lögmaður Texas Transgender Student Union (TTSU) og ónefndra viðskiptavina InfoBip er Chris Hilton, en hann starfaði áður náið með Paxton. Hilton sagði í þinghaldi á þriðjudaginn að skjólstæðingur hans hefði sent fjölpóstinn í nafni tjáningarfrelsis. TTSU var ekki stofnað í Texas heldur í Wyoming en þar er hægt að stofna einkahlutafélag án þess að þurfa að opinbera hver stendur á bak við það. 

Málið hefur valdið miklu fjaðrafoki. Fyrst voru það foreldrar barna sem urðu bálreiðir þegar bréfin bárust börnum þeirra. TENT hefur þurft að loka skrifstofu sinni og vefsíðu vegna áreitni og hótana í garð starfsmanna. Þingmaður Repúblikana, Jeff Leach, krafðist þess að TENT yrði rannsakað og dregið til ábyrgðar fyrir að brjóta gegn skýru banni Texas við að markaðs- og kynningarefni um trans málefni sé beint að ólögráða einstaklingum. Síðan kom á daginn að TENT stóð ekki fyrir bréfunum, en Leach hefur nú farið fram á almenna rannsókn til að leiða í ljós hver ber í raun og veru ábyrgð.

Paxton segir í yfirlýsingu til CBS að hann hafi ekkert með málið að gera. 

Trans málefni áberandi í auglýsingum 

Málið er nú komið á borð saksóknara og er rannsakað sem skjalafals, en slíkt er litið alvarlegum augum í Texas.

Eftir standa margar spurningar. Hver sendi bréfin og hvers vegna? Þykir mörgum ljóst að bréfin hafi verið send í annarlegum tilgangi. Þeim var ekki ætlað að fræða heldur að kynda undir reiði sem myndi fá fleiri kjósendur en ella í kjörklefana á þriðjudaginn.

Málefni trans fólks eru áberandi í kosningabaráttunni en talið er að Repúlikanaflokkurinn hafi varið rúmlega 20 milljörðum í auglýsingaherferðum sem er bent gegn trans málefnum. 

Chris Wilson, sem er repúblikani sem vinnur við gerð skoðanakannana, segir í samtali við CBS-fréttastofuna:

„Repúblikanar telja greinilega að þessi málaflokkur sýni fram á menningarlega gjá milli frambjóðenda Demókrata og verulegs hluta kjósenda. Það er ekki endilega svo að stefna í málefnum trans fólks sé efst á baugi hjá kjósendum, en þeir geta notað afstöðu til hennar sem mælikvarða á gildi og dómgreind frambjóðenda.“

CBS hefur ekki tekist að finna út hver stendur á bak við TTSU en telur ljóst að þar sé um að ræða fjársterkan aðila sem hafi líklega varið tugum milljóna í fjölpóstinn og lagt mikið á sig til að leyna nafni sínu.