Pressan

Þetta getur hjálpað þér að fara fyrr á fætur

Mynd
Vekjaraklukka

Það er hrein og bein þjáning fyrir suma að þurfa að fara á fætur á morgnana. Sérstaklega fyrir þá sem elska að sofa frameftir og eru ekta B-manneskjur. Það getur reynst þessum hópi sérstaklega erfitt að komast á fætur.

En það eru til fimm ráð, og eflaust fleiri en það ef vel er leitað, sem geta hjálpað til við að komast á fætur.

Til að sleppa við að sofa yfir sig eða liggja áfram í rúminu þá er hægt að notast við eftirfarandi ráð sem geta hjálpað þér við að komast hraðar fram úr rúminu.

Ekki láta vekjaraklukkuna standa á náttborðinu

Ef vekjaraklukkan er ekki við hliðina á rúminu, þá þarftu að standa upp til að slökkva á henni. Þegar þú ert komin(n) fram úr, þá byrjar líkaminn hægt og rólega að komast í gang og það verður auðveldara að klára það sem þarf að klára inni á baði eða hella upp á.

Ekki nota snúsið

Hinn vinsæli snús-möguleiki gefur manni færi á að sofa aðeins lengur áður en klukkan hringir aftur. En þegar þú slekkur á fyrstu hringingunni heldur líkaminn að þetta hafi verið fölsk hringing og þú sofnar aftur djúpum svefni. Í hvert sinn sem snús-hringing heyrist þá ertu rifin(n) út úr djúpum svefni og það gerir þér enn erfiðara fyrir við að komast fram úr.

Forðastu myrkur

Það er gott að slá þessu ráði saman við það fyrsta. Þegar þú ert komin(n) fram úr til að slökkva á vekjaraklukkunni, þá skaltu hleypa náttúrulegri birtu inn í herbergið. Dagsbirta heldur aftur af framleiðslu líkamans á hinu náttúrulega svefnhormóni melatóníni. Með þessu vaknar þú hraðar en ef þú kveikir ljósið eða á næturlampa. Svo er hægt að gera enn betur og opna glugga til að hleypa frísku lofti inn.

Drekktu vatn

Maður missir um hálfan lítra af vökva þegar maður sefur. Ef þú drekkur eitt glas af volgu vatni þegar þú vaknar, þá vinnurðu þetta tap upp. Þetta kemur heilanum í gang og efnaskiptunum, meltingunni og nýrunum.

Farðu alltaf á fætur á sama tíma

Haltu þig við ákveðinn svefnryþma. Ef háttatíminn er síbreytilegur, þá ruglar þú líkamsklukkuna og það verður erfiðara að vakna. Farðu þess vegna á fætur á sama tíma á hverjum degi, líka um helgar. Gættu þess einnig að sofa að minnsta kosti sjö klukkustundir á hverri nóttu.