Í nýbirtum skjölum frá bandaríska varnarmálaráðuneytinu Pentagon er skýrt frá dularfullum „svörtum þríhyrningi“ sem flaug nærri „viðkvæmum“ stað í Bandaríkjunum fyrr á árinu.
Er hluturinn sagður hafa flogið jafn hratt og orustuþota en engin sýnilegur útblástur hafi komið frá honum.
Ekki er skýrt frá hvar hluturinn sást og er þjóðaröryggi borið við. Eina sem kemur fram er að þetta hafi verið í vesturhluta landsins og hafi verið í júní.
Tveir lögreglumenn frá alríkislögreglunni FBI voru að störfum skammt frá staðnum og var strax gert viðvart um hlutinn. Þeir færðu sig strax á annan stað til að reyna að sjá hlutinn og tókst það.
Þeir lýstu honum sem svörtum og þríhyrningslaga. Birta hafi ekki endurkastast af honum og hafi hann einna helst líkst dróna en verið mun stærri. Þeir sáu engan útblástur koma frá hlutnum.