„„Eina mínútu.“ Jeff hætti að kela við mig, fór út úr rúminu sínu, opnaði svefnherbergisdyrnar sínar og fór fram. Ég lá ber að ofan í dimmu og ókunnugu svefnherbergi. Ég vissi ekki hvað var að gerast. Svo ég beið.“
Svona sagði kona ein frá í samtali við Metro um undarlega upplifun í aðdraganda kynlífs. Hún hélt síðan áfram:
„Ein mínúta leið. Tvær. Fimm. Tíu mínútum síðar, kom hann aftur inn, lagðist ofan á mig og hélt áfram eins og ekkert hefði í skorist.
Engin ástæða, ekkert samtal – bara kelað aftur.
Með einum stórum mun, hann var ekki eins örvaður og áður en hann fór.
Mér létti svo mikið þegar hann kom aftur að ég hélt áfram án þess að spyrja spurninga. En ég gat ekki hætt að velta fyrir mér hvað hann gerði þessar tíu mínútur.“
Konan vann með Jeff og leist vel á hann þótt hann hafi verið svolítið undarlegur en þó vinsæll vegna þess hversu góðan húmor hann hafði.
Þau byrjuðu að daðra þegar vinnufélagarnir fóru út saman eitt sinn og þau keluðu það kvöld en ekkert meira gerðist.
Hann skipti síðan fljótlega um vinnustað og fóru þau að hittast eftir það. Þau hittust í fyrsta sinn á kaffihúsi og ræddu eitt og annað og hann nefndi eitthvað um að hann hefði ekki verið samhæfður síðustu kærustunni sinni. „Í rúminu?“ spurði ég án þess að átta mig á hvað ég var að segja. Hann roðnaði en svaraði: „Já, ég held að þetta hafi ekki virkað hjá okkur . . . á því sviði.“
Þau hittust síðan aftur og snæddu saman og ljóst var að allt stefndi í kynlíf.
„Þegar við komum heim til hans, enduðum við í rúminu eftir að hafa rekist á hurðir á meðan við keluðum.
Þetta var að verða heitt og ástríðufullt og ég var að örvast. Hann líka, ég fann hvernig hann varð ákafari um leið og hann stundi og kyssti mig alla.
Ég var tilbúin. Það var kominn tími.
Og þá fór hann.
Í 10 mínútur.
Þegar hann kom aftur, þá var hann ekki eins örvaður.
Ég sagði ekkert og við stunduðum kynlíf sem stóð mun lengur en ég vildi eða átti von á og var pínu aum á eftir.“
Hún ræddi þetta ekki við hann en spurði hann nokkrum dögum síðar, þegar þau skiptust á textaskilaboðum, hvað hann hefði gert í þessar tíu mínútur sem hann lét sig hverfa.
„Guð minn góður. Ég biðst afsökunar. Ég var of æstur. Ég varð að sinna mér sjálfur því annars hefði ég ekki enst lengi,“ skrifaði hann.
Hún segist hafa hlegið og starað á skilaboðin og hafi ekki getað trúað þessu.
„Af hverju sagðirðu ekkert?“ spurði hún.
„Ég skammaðist mín,“ svaraði hann að lokum.
Hún segist hafa velt því fyrir sér í framhaldi af þessu hvort þetta hafi verið samhæfingarvandamálið sem hann sagðist hafa átt í með síðustu kærustunni sinni.