Íhaldssamir áhrifamenn í Íran líta á stríð Bandaríkjanna gegn klerkastjórninni sem rök fyrir að Íran eigi að herða vinnuna við kjarnorkuáætlun sína og koma sér upp kjarnorkuvopnum.
Fyrir tveimur áratugum gaf Ali Khamenei, þáverandi æðstiklerkur, út tilskipun um að Íran mætti ekki þróa eða nota kjarnorkuvopn.
Þetta hefur klerkastjórnin notað sem sönnun fyrir að kjarnorkuáætlun hennar hafi verið í friðsamlegum tilgangi og að ekki hafi staðið til að smíða kjarnorkuvopn.
En Khamenei er dáinn. Hann lést í loftárás á fyrsta degi stríðs Írans og Bandaríkjanna. Dauði hans hefur sannfært marga af harðlínumönnunum í Teheran um að eina vitið sé að herða kjarnorkuáætlunina og smíða kjarnorkuvopn.
Þeir benda á Norður-Kóreu og segja að Bandaríkin hefðu ekki þorað að ráðast á Íran ef landið hefði átt kjarnorkuvopn. Jótlandspósturinn skýrir frá þessu.
Davoud Modarresian, pólitískur aðgerðasinni sem tengist íhaldsmönnum í Teheran nánum böndum, sagði nýlega að stríðið hafi sýnt að það sé ekki bara metnaður fyrir Íran að eignast kjarnorkuvopn, það sé nauðsyn.
Hassan Ghashghavi, talsmaður öryggismálanefndar íranska þingsins, sagði nýlega að þörf væri á að taka upp annarri fælingaráætlun til að „koma í veg fyrir að núverandi mynstur með samningum og stríði endurtaki sig“.