Pressan

Sérfræðingur segir að svona munum við uppgötva ef Rússar ætla að grípa til hernaðaraðgerða

Mynd

Það eru vaxandi áhyggjur af fyrirætlunum Vladímír Pútíns varðandi Evrópu. Mun hann láta her sinn grípa til aðgerða í Eystrasaltsríkjunum? Eða lætur hann reyna á Pólland? Eða bara eitthvað allt annað?

Fjölþáttaárásum, sem eru runnar undan rifjum Rússa, á Vesturlönd hefur fjölgað mikið á síðustu mánuðum. Það hefur ýtt enn frekar undir áhyggjur um að Pútín muni grípa til hernaðaraðgerða.

Það þarf þó ekki að óttast að Pútín láti her sinn ráðast inn í Finnland, Pólland eða Eystrasaltsríkin. Þetta er mat Mark Galeotti sem er sérfræðingur í málefnum Rússlands.

Í samtali við B.T. sagði hann að ástæðan fyrir þessu sé að Vesturlönd myndu uppgötva þessar fyrirætlanir áður en hægt sé að hrinda þeim í framkvæmd. Þess utan hafi Rússar þörf fyrir herafla sinn annars staðar.

Hann sagði að Rússar hafi bundið um 95% af landher sínum í Úkraínu. Restin séu þeir sem gegna herskyldu og þeir séu ekki sérstaklega vel þjálfaðir.

„Ef til mikillar hernaðaruppbyggingar kemur í vestanverðu Rússlandi, þá munum við uppgötva það samstundis. Nú þegar er fylgst vel með til þess að tryggja að við fáum aðvörun ef herliði verður safnað saman,“ sagði hann.

Galeotti sagðist eiga erfitt með að sjá að hvernig hugsanleg rússnesk árás á evrópskt nágrannaríki gæti litið úr.

„Það er mikið talað um að láta reyna á NATÓ og svo framvegis. Það færir Rússum engan ávinning. Það mun ekki breyta því sem gerist í Úkraínu,“ sagði hann.

Hann sagði jafnframt að ef Pútín fái þá hugmynd að það geti verið nytsamlegt að ráðast á Evrópu, þá verði mjög erfitt að gera það. Hann verði að grípa til umfangsmikillar herkvaðningar og það væri honum mjög hættulegt pólitískt séð og Vesturlönd myndu sjá það.