Sá ótrúlegi og skelfilegi atburður átti sér stað nýlega á amtsvegi 714 í Orkland í Noregi að bílstjóri einn lést undir stýri. Samt sem áður hélt bíllinn för sinni áfram í 17 mínútur, þar á meðal í gegnum þrenn göng.
NRK skýrir frá þessu og segir að kona, sem var farþegi í bílnum, hafi ekki getað gert neitt til að stöðva bílinn. Sem betur fer slapp hún ómeidd frá þessu.
Það var um hádegisbil að lögreglunni var tilkynnt um bíl sem hefði ekið á vegrið og síðan á vegginn við gangaopið á Brattistiåstunnelen. Leyfður hámarkshraði á þessum vegi er 80 km/klst.
Talsmaður lögreglunnar að síðan hafi bíllinn haldið för sinni áfram en á mjög litlum hraða, svo hafi virst að enginn stýrði honum.
Það tókst ekki að stöðva bílinn fyrr en eftir 17 mínútur þegar slökkviliðsmaður náði að stöðva hann.
Strax var hafist handa við að reyna að bjarga lífi hins 58 ára ökumanns en það tókst ekki.
Talið er að maðurinn hafi látist af heilsufarsástæðum, ekki vegna óhappsins. Niðurstöðu krufningar er þó enn beðið.