Pressan

Lifði fyrstu klukkustundir eldgossins af – Síðan kom fljúgandi steinblokk

Mynd
Steinblokkin lenti á honum á flóttanum.

Hann svo heppinn að lifa fyrstu klukkustundir eldgossins í Vesúvíusi, árið 79 eftir Krist, af. Hann slapp í gegnum fyrstu hörmungarnar þar sem ösku og steinum rigndi yfir bæinn.

Maðurinn var á leið eftir götum Pompei þegar 300 kílóa steinblokk lenti á honum og kramdi efri hluta líkamans. Krafturinn í eldgosinu hafði þeytt blokkinni langa vegalengd.

Eitt það athyglisverðasta við fundinn á beinagrind mannsins eru smáatriðin. Neðri hluti líkamans og fæturnir liggja í öskunni og steinninn er ofan á efri hluta líkamans, nákvæmlega þar sem hann lenti. Þetta er augnabliksmynd af sekúndu fyrir tæpum 2.000 árum.

Fornleifafræðingar fundu einnig litla buddu, með peningum í, nærri. Maðurinn hafði reynt að taka verðmæti sín með á flóttanum.

Pompei er full af augnabliksmyndum á borð við þessa því askan innsiglaði bæinn á meðan líf var enn að finna í honum.

Myndin er ekki af sviðsetningu, hún er af raunverulegri sviðsmynd og það er erfitt að leiða ekki hugann að því hversu nálægt því að sleppa maðurinn var.