Hvernig léttist ég? Þarf ég að vera svangur/svöng til þess? Þarf ég stöðugt að finna til hungurs?
Þessar spurningar eru meðal þeirra sem lesendur woman.dk spurðu sérfræðing miðilsins um varðandi hvernig sé hægt að losa sig við aukakílóin.
Til að léttast þarf maður ekki endilega að borða litla matarskammta eða vera svangur/svöng. Til að léttast þarf að innbyrða færri hitaeiningar en maður brennir.
Sérfræðingurinn benti á að gott ráð sé að einblína á mettandi mat. Prótínríkur og trefjaríkur matur veitir góða mettungartilfinningu og það þýðir að það getur verið kostur að borða mat sem inniheldur mikið prótín og trefjar.
Meðal matvæla sem metta vel eru hvítur fiskur, kjúklingur, belgjurtir, soðnar kartöflur, heilhveitivörur, ávextir og gróft grænmeti.
Það er einnig mikilvægt að koma sér upp reglulegum rútínum með matinn og borða áður en maður verður mjög svangur/svöng.
Sérfræðingurinn benti á að það sé ekki gott að munurinn á hitaeininganeyslunni og brennslunni sé of mikill því það hafi svengd í för með sér og það gengur ekki til lengdar.
Hann ráðleggur fólki að einblína á hollt og gott mataræði sem veitir næringu og mettar vel og að láta þyngdartapið taka aðeins meiri tíma.