Pressan

Grunaður morðingi talinn hafa notað gervigreind til að sviðsetja eigið andlát

Mynd
Mynd/Getty

Maður, sem er grunaður um morð á Indlandi, er grunaður um að hafa sviðsett eigið andlát með því að nota gervigreind. Með því að verða sér úti um dánarvottorð og senda til dómstóls ætlaði hann að komast hjá því að réttað yrði yfir honum.

The Independent segir að maðurinn, Rajkumar Rajbhar 38 ára, hafi verið handtekinn í Uttar Pradesh héraðinu eftir að lögreglan komst á snoðir um það sem hún segir vera samsæri um að sannfæra dómstóla um að hann væri látinn.

Rétta átti yfir Rajbhar fyrir að hafa skotið Yogesh Sing til bana í desember 2016. Lögreglan segir að hann hafi falsað gögn um andlát sitt til að koma í veg fyrir að eitthvað yrði úr réttarhöldunum yfir honum. Einnig átti að rétt yfir honum fyrir að hafa fengið fólk til að láta honum reiðufé í té sem hann sagðist ætla að nota til fjárfestinga.

Rajbhar er sagður hafa sett útför geitar á svið og notað myndir frá henni til að láta gervigreind búa til mynd af sér á bálkestinum í stað geitarinnar. Þetta átti að styðja frásagnir um að hann væri dáinn.