Pressan

Fyrrum skólafélagar Kim Jong-un segja hvernig hann var áður en hann varð einræðisherra

Mynd
Einræðisherrann með leyniskytturiffil. Mynd:KCNA

Norður-Kórea er rammgert virki þar sem engin á að sleppa inn eða út. Þjóðinni er haldið í ógnargreipum af einræðisstjórn Kim Jong-un sem hikar ekki við að láta taka fólk af lífi ef það er einræðisstjórninni ekki þóknanlegt eða reynir að flýja land. Þjóðin býr við mikla örbyggð og stór hluti hennar sveltur á meðan einræðisherrann og hans fólk lifir lúxuslífi.

En áður en Kim Jong-un tók við völdum af föður sínum dvaldi hann í Sviss og stundaði nám þar í þýskumælandi hluta landsins, nærri Bern.

Hann var kallaður Pak Un á meðan hann dvaldi í Sviss og var fólki sagt að hann væri sonur starfsmanns norðurkóreska sendiráðsins.

Daily Beast ræddi við nokkra af gömlu vinum einræðisherrans frá skólaárum hans í Sviss. Þeir sögðu að hann hefði eignast vini á meðan hann var þar.

„Við skemmtum okkur mikið saman. Hann var góður gæi,“ sagði Joao Micaelo, skólabróðir mannsins sem varð síðar grimmur einræðisherra.

„Mörgum líkaði við hann. Ég veit ekkert um líf hans í dag. Ég veit bara að ég þekkti hann þegar við vorum saman í skóla. Hann elskaði körfubolta. Við spiluðum mikið saman. Ég myndi vilja segja honum að ef hann hefur einhvern tíma, að setja sig í samband við mig aftur svo við getum talað saman,“ sagði Micaelo einnig.

Marco Imhof sagði að hinn ungi Kim hafi verið „fyndinn“ og „alltaf til í grín“ en hafi „hatað að tapa“ og hafi fundist mjög mikilvægt að sigra.

Önnur skólasystkini hans sögðu hann hafa góðan húmor og tóku fram að nemendurnir hafi ekki rætt stjórnmál sín á milli svo þau hafi ekki fengið tilfinningu fyrir hvar hann stóð í þeim efnum.

Fyrrum lífvörður föður hans sagði í samtali við ABC News að Kim Jong-un hafi „verið stressaður og hafi ekki haft neinn á sínum aldri til að leika við“ í æsku. Sagði lífvörðurinn að þetta hafi valdið því að Kim Jong-un hafi orðið mjög „sprengifimur“ og hafi í reiðiköstum gert hluti án þess að hugsa um afleiðingarnar af því sem hann gerði.

„Hann var skapmikill. Honum er alveg sama um hvað öðrum finnst. Hann finnur ekki til með öðru fólki. Hann gerir það sem hann vill. Hann myndi öskra á konur. Þannig var hann,“ sagði lífvörðurinn og kom þarna með lýsingu á einræðisherranum sem er nær því sem við vitum um hann.