Pressan

Bandaríkin undirbúa sig undir stórstyrjöld

Mynd
Pete Hegseth stýrir verkefninu. Mynd/Getty

Það er eitthvað að gerjast í Bandaríkjunum. Eitthvað sem á að gera landið reiðubúið fyrir stórstyrjöld.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem lýstir nýjasta verkefninu í bandaríska stríðsmálaráðuneytinu. Verkefnið heitir „Meridian“ og er hluti af hinu stóra „Fortress-verkefni“ að sögn Fox News.

Verkefnið gengur út á að tryggja að landið geti viðhaldið stríðsgetu sinni ef mikilvægir innviðir bregðast.

Fox News hefur fengið innsýn í verkefnið sem er undir forystu stríðsmálaráðuneytisins og er Pete Hegseth, stríðsráðherra, í fararbroddi verkefnisins. Meðal þeirra sem hafa unnið með verkefnastjórninni er Elon Musk.

Einn hluti verkefnisins gengur út á að tryggja að bandarískar herstöðvar geti starfað í minnst 90 daga án aðstoðar utan frá.

Verkefnið er hluti af undirbúningi undir hugsanlega stórstyrjöld sem gæti til langs tíma litið lamað raforkukerfið, raskað birgðaflutningum og ógnað mikilvægum innviðum í Bandaríkjunum.

„Við viljum ekki vera háð venjulegum almennum innviðum til að tryggja varnir landsins. Það getum við einfaldlega ekki. Það er óásættanleg áhætta,“ sagði talsmaður Pentagon í samtali við Fox News.

Pentagon vinnur að því að tryggja rafmagn fyrir herstöðvar ef almenna raforkukerfið klikkar. Eitt af því sem er með í dæminu er að nota litla kjarnorkukljúfa sem gætu tryggt rafmagn í herstöðvum þrátt fyrir langvarandi rafmagnsleysi.