Frá og með 6. nóvember verður ólöglegt í Englandi og Wales að eiga eða dreifa tilteknum tegundum klámefnis, meðal annars efni sem sýnir kyrkingar við kynlíf eða kynferðislegar athafnir milli skyldmenna (e. incest).
Einstaklingar sem geyma slíkt efni í símanum sínum eða tölvu geta átt yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsi. Frá þessu greinir breska ríkisútvarpið BBC en breytingarnar eru liður í aðgerðum breskra stjórnvalda gegn grófu og ofbeldisfullu klámefni á netinu.
Bannið nær einnig til klámefnis þar sem fullorðnir einstaklingar leika hlutverk barna yngri en 16 ára í kynferðislegu samhengi. Varsla slíks efnis getur varðað allt að þriggja ára fangelsi en þeir sem birta eða dreifa efni sem fellur undir nýju ákvæðin geta átt yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsi.
Óhugnanleg niðurstaða úttektar
Í frétt BBC kemur fram að lagabreytingarnar komi í kjölfar umfangsmikillar úttektar á klámiðnaðinum árið 2025. Þar kom meðal annars fram að klámefni sem sýnir kyrkingar við kynlíf væri afar útbreitt á vinsælum klámsíðum og hefði stuðlað að því að ungmenni litu á slíka hegðun sem eðlilegan hluta kynlífs.
Í úttektinni var meðal annars vísað til atviks þar sem 14 ára drengur spurði kennara sinn hvernig ætti að kyrkja stúlkur við kynlíf.
Gabby Bertin barónessa, sem stýrði úttektinni, segir lagabreytingarnar löngu tímabærar.
Hún sagði í samtali við BBC að klámefni sem sýndi kyrkingar hefði átt stóran þátt í að gera kynferðislegt ofbeldi eðlilegt í augum fólks.
„Þessu verður að linna og ég vona að þessi lagabreyting marki upphafið að því,“ sagði hún.
Fólk hvatt til að eyða efninu
Alex Davies-Jones, ráðherra í breska dómsmálaráðuneytinu, segir að markmiðið sé að sporna gegn útbreiðslu klámefnis sem geti mótað skaðleg viðhorf til kynlífs og ofbeldis.
Hún bendir á að klám geti mótað hugmyndir fólks, sérstaklega ungmenna, um heilbrigð sambönd og ásættanlega kynferðislega hegðun.
„Ef þú átt þetta efni skaltu eyða því. Ef þú ert að deila því skaltu hætta því,“ sagði ráðherrann. „Þetta er ekki eins saklaust og þú kannt að halda og eftir 6. nóvember verður þetta refsivert.“