Pressan

Skaut son sinn með sömu byssu og hún notaði til að drepa föður hans fyrir 20 árum - „Þetta var slys. Ég bið yður um miskunn, herra dómari“

Mynd
Linda Cooney.

Kona drap fyrrverandi eiginmann sinn á tíunda áratug síðustu aldar og notaði síðan, tuttugu árum síðar, sömu byssuna til að skjóta eldri son sinn. Linda Cooney hélt því fram að fyrra atvikið hefði verið sjálfsvörn, en að það síðara hefði verið slys.

Cooney ólst upp á sveitabæ í Wisconsin og flutti til Flórída til að vinna. Síðar giftist hún Jim Cooney, lögfræðingi í Palm Beach, sem var vel þekktur í ríkum hópum á svæðinu. Hjónaband þeirra, sem varð smám saman erfiðara og einkenndist að lokum af líkamlegu ofbeldi, gaf af sér tvo syni, Kevin og Christopher.

Linda og Jim skildu níu árum síðar og deildu um forræði yfir sonunum. Samkvæmt CBS News á sínum tíma sagði bróðir Jim, Bob Cooney: „Jim kom til að sækja börnin fyrir helgina sína, en þau var hvergi að finna... en ef Jim lét hana fá peninga, þá gátu þau allt í einu látið sjá sig.“

Stormasamt sambandið endaði með hörmulegum hætti kvöld eitt árið 1992, þegar Jim kom til að sækja drengina á heimili móður þeirra fyrir helgarheimsókn. Á meðan drengirnir voru inni í svefnherbergi að pakka niður fyrir ferðina heyrði eldri sonurinn, Kevin, læti fyrir utan. Hann gægðist í gegnum gat á svefnherbergishurðinni og sá þá mann, sem hann taldi vera föður sinn, halda á glansandi hlut. Móðir hans skaut þá á manninn með .357 Magnum-skammbyssu um leið og hann gekk í átt að svefnherberginu.

Eftir að hafa orðið vitni að ofbeldisverkinu hringdi Kevin í lögregluna. Þegar Linda, sem var að reyna að hringja í vin sinn, lögfræðing, áttaði sig á því hvað sonur hennar var að gera, tók hún símann úr höndum hans. Hún hringdi í lögregluna og sagði í miklu uppnámi að hún hefði skotið fyrrverandi eiginmann sinn, þótt hún „vissi ekki“ hvort kúlan hefði hitt hann eða ekki.

Linda var handtekin og ákærð fyrir morð af fyrstu gráðu. Hún bar því við sér til varnar að Jim hefði ógnað henni með hníf og að Kevin hefði séð hnífinn í höndum föður síns. Rannsakendur töldu hins vegar að hún hefði komið hnífnum fyrir í höndum mannsins eftir að hann lést, og með sálrænni stjórnun, gaslýsingu, fengið Kevin til að trúa því að hann hefði séð hann.

Við réttarhöldin bar Kevin vitni og staðfesti að hann hefði séð „glitrandi endurkast“ á hendi föður síns, þótt hann væri ekki viss um hvað það hefði verið. Linda var sýknuð af öllum ákærum, en afleiðingar málsins urðu til þess að hún gat ekki lengur búið í Flórída. 

Mynd
Feðgarnir Jon, Kevin og Christopher,

Fjölskyldan flutti til Las Vegas, þar sem drengirnir áttu erfitt uppeldi, samkvæmt heimildum þaðan. Eftir að synirnir voru orðnir fullorðnir hélt Linda áfram að sýna yfirþyrmandi eignarhneigð gagnvart þeim og skipti sér oft af samböndum þeirra, að sögn fyrrverandi kærustum þeirra. Við ýmis tækifæri héldu synirnir nýjum samböndum leyndum fyrir móður sinni, til að vernda þau fyrir áreitni hennar.

Að sögn saksóknarans Shanon Clowers var „markmið Lindu að gera konum lífið svo ömurlegt að þær myndu ekki lengur vilja vera með Kevin.“

Þegar Kevin hóf samband við MMA-bardagakonuna Karinu Taylor árið 2011, mun Linda hafa hringt í konuna til að áreita hana.

Síðan, að morgni 28. júní 2011, tók sagan enn ofbeldisfyllri stefnu. Linda hringdi í lögregluna og sagði að 30 ára gamall sonur hennar hefði verið skotið í hálsinn, en hún vissi ekki nákvæmlega hvað hefði gerst.

Kevin var fluttur á sjúkrahús á meðan Linda var yfirheyrð. Hún sagði að þau Kevin hefðu rifist snemma morguns vegna nýs sambands hans, og að Kevin hefði slegið hana áður en hún fór að sofa. Hún kvaðst hafa vaknað um klukkan átta um morguninn og gengið inn í stofu, þar sem hún fann Kevin blóðugan á gólfinu; hún sagðist ekki hafa heyrt skot.

„Hún virtist vera manneskja sem reyndi að hylma yfir það sem hafði gerst,“ sagði Lance Landholm, rannsóknarlögreglumaður hjá lögreglunni í Las Vegas.

Við rannsókn á vettvangi fundu yfirvöld blóðuga byssu, .357 Magnum-skammbyssu sem notuð var til að drepa Jim Cooney, en Linda hafði náð að komast yfir hana úr sönnunargagnageymslu lögreglunnar 20 árum fyrr.

Mynd
Christopher, Linda og Kevin.

Þegar Kevin vaknaði á sjúkrahúsinu þremur dögum síðar sagði hann strax: „Ekki mamma. Ég er hræddur við mömmu. Mamma skaut mig.“ Linda var handtekin skömmu síðar.

Skömmu fyrir réttarhöldin breytti Kevin framburði sínum. „Hann segir að þau móðir hans hafi verið að rífast, að hann hafi ráðist á hana og að um slys hafi verið að ræða,“ sagði saksóknarinn Shanon Clowers.

Í réttarhöldunum lýstu saksóknarar Lindu sem móður sem vildi ekki leyfa syni sínum að flytja frá henni, sem leiddi til harðvítugrar deilu þar sem hún skaut hann. Verjendur hennar héldu því hins vegar fram að Kevin hefði verið reiður út í hana fyrir að reyna að standa í vegi fyrir sambandi hans og að þau hefðu tekist á um byssuna áður en hún hleypti af fyrir slysni.

Kevin, sem talaði úr sjúkrarúmi sínu, sagðist vera stjórnsamur sonur og að átökin hefðu verið honum að kenna, þótt saksóknarar teldu að hann væri að reyna að taka sökina á sig til að vernda móður sína. Hann sagði: „Ég segi mömmu fyrir verkum. Mamma er barnið í þessu sambandi, ekki ég... Mamma gerir það sem ég segi, annars fær hún hnefann í sig.“

Mynd
kevin ber vitni.

Meðal vitna var Christopher, hinn sonur Lindu. Hann sagði að móðir hans hefði í upphafi ekki útskýrt fyrir honum hvernig atvikið átti sér stað, en rétt fyrir réttarhöldin hefði hún sagt honum að skotið hefði farið af fyrir slysni.

Annað vitni, Clarita Kendall, fyrrverandi kærasta Kevins, sagðist hafa heimsótt hann á sjúkrahúsið. Þar hefði hann sagt henni að hann hefði setið í sófa þegar móðir hans skaut hann skyndilega. Samkvæmt heilbrigðisstarfsfólki var skotið miðað niður á við sem gengur þvert á framburð Kevins sjálfs.

Að lokum komst kviðdómur að þeirri niðurstöðu að Linda væri sek um tilraun til manndráps, líkamsárás með banvænu vopni, að hafa reynt að hræða Kevin áður en hann bar vitni, og að hafa ellt og áreitt kærustu Kevins, Karinu Taylor.

Kevin skrifaði miða þar sem stóð: „Móðir mín hefur verið ranglega sökuð um og sakfelld fyrir glæpi sem hún framdi ekki. Það eru mínar eigin gjörðir sem hafa leitt mig í þá stöðu sem ég er í núna... móðir mín situr saklaus í fangelsi.“

Við dómsuppkvaðningu, þar sem Linda var dæmd í 13 til 40 ára fangelsi, las hún upp yfirlýsingu: „Sonur minn, Kevin, bar með sér reiði- og ofsaköst sem hann hlýtur að hafa erft frá föður sínum... Engu að síður verndaði ég son minn alltaf, varði hann og elskaði, og ég hefði aldrei viljandi skaðað hann... Það sem gerðist var honum að kenna. Þetta var slys... Ég bið yður um miskunn, herra dómari.“