Pressan

Lík fannst í tunnu á botni stöðuvatns – Nú er loksins vitað hver maðurinn var

Mynd
Edward “Buddy” Lelburian Jackson.

Bandarískum yfirvöldum hefur loks tekist að bera kennsl á líkamsleifar manns sem fundust í tunnu í Lake Mead-vatni í Nevada árið 2022.

Fundurinn vakti gríðarlega athygli á sínum tíma, enda bentu rannsóknir til þess að maðurinn hefði verið myrtur áratugum áður.

Líkamsleifarnar komu í ljós þegar vatnsborð Lake Mead lækkaði verulega vegna langvarandi þurrka. Fólk á báti fann tunnuna í grunnu vatni og leiddi réttarfræðileg rannsókn í ljós að maðurinn hafði verið skotinn einu sinni í höfuðið.

Nú, fjórum árum síðar, hefur tekist að bera kennsl á manninn með DNA-rannsóknum. Hann hét Edward Lelburian Jackson en gekk einnig undir gælunafninu Buddy.

Frá þessu greinir The Guardian.

Fatnaður mannsins gaf vísbendingar um að morðið hefði verið framið seint á áttunda áratugnum eða í byrjun þess níunda, þegar skipulögð glæpastarfsemi var umfangsmikil í Las Vegas.

Vöknuðu því grunsemdir um að morðið tengdist mafíunni en Robert Price, rannsóknarlögreglumaður í Las Vegas, segir ekkert hafa komið fram sem styðji þær kenningar.

Jackson var frá Arkansas og fjölskylda hans segir að síðast hafi sést til hans í upphafi níunda áratugarins. Lögregla hefur komist að því að hann bjó um tíma í Kaliforníu og Utah en engin tengsl við Las Vegas hafa þó fundist.

Loks tókst að bera kennsl á Jackson með aðstoð sérfræðinga við Oklahoma State-háskóla, sem báru erfðaefni úr líkamsleifunum saman við DNA úr ætluðum ættingja hans.

Fleiri líkamsleifar fundust í Lake Mead árið 2022 eftir að vatnsborðið lækkaði verulega. Meðal annars fannst önnur tunna skammt frá þeirri fyrri, en hún reyndist tóm.

Þótt nú hafi tekist að bera kennsl á Jackson stendur stóra spurningin eftir. Hver var það sem myrti hann og hvers vegna?