Faðir í Erie í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum hélt fjölskyldu sinni einangraðri í mörg ár á ógeðslegu heimili þar sem flöskur fullar af þvagi lágu á víð og dreif. Síðan fylgdi blóðbaðið. Átta manns, þar á meðal tvö ung börn og ólétt kona, voru myrt áður en byssumaðurinn beindi byssunni að sjálfum sér.
Áður en Matthew Stone eldri drap átta manns hafði hann í mörg ár beitt konu sína, börn og barnabörn stjórnsemi og einangrun. Þetta herma ættingjar sem lýstu sífellt verri aðstæðum fjölskyldunnar fyrir lögreglu. Borin hafa verið kennsl á fórnarlömbin níu í skotárásinni föstudaginn 9. október síðastliðinn. Þau eru: eiginkona árásarmannsins, Michelle Stone (44 ára); dóttir hennar Angelina Stone (24 ára) og synirnir Jonathan Stone (19 ára) og Matthew Stone (21 árs); barnabörnin Amari’anna Stone (eins árs) og Isiah Hudges (5 ára); systir Michelle, Lora Roberts (37 ára), ásamt Twila Tanner (51 árs) og ófætt barn Angelinu, Kyrie Stone. Matthew Stone eldri (45 ára) beindi byssunni að sjálfum sér eftir að hafa drepið fjölskylduna.
Rick Lorah, lögreglustjóri í Erie, greindi frá þessu á blaðamannafundi fimmtudaginn 15. október. Hann sagði ættingja hafa lýst margra ára ofbeldi og einangrun sem Matthew eldri á að hafa beitt konu sína og börn. „Fjölskyldumeðlimir lýsa heimili þar sem Matthew Stone eldri beitti konu sína, Michelle, börn þeirra og barnabörn mikilli stjórnsemi,“ sagði Lorah og bætti við að hann hefði haft yfirráð yfir fjármálum fjölskyldunnar. „Hann setti hömlur á hvenær fjölskyldumeðlimir máttu yfirgefa heimilið og hitta ættingja,“ sagði hann.
Að sögn ættingja varð Matthew eldri sífellt stjórnsamari eftir að Michelle varð ólétt af fyrsta barni þeirra. Með tímanum hætti Michelle að eiga samskipti við vini og átti aðeins takmörkuð samskipti við aðra ættingja. Lorah sagði að mál sem höfðu verið höfðuð gegn Matthew eldri vegna heimilisofbeldis hefðu verið felld niður eftir að Michelle breytti framburði sínum við fyrstu yfirheyrslu fyrir dómstólum.
Rannsakendur komust einnig að því að heimili fjölskyldunnar var í afar óhreinu ástandi, sagði Lorah, og mátti meðal annars finna „fjölmargar tveggja lítra flöskur fullar af þvagi“ víðs vegar um húsið. Sturta, salerni og vaskar í eldhúsi virtust ónothæf, þrátt fyrir að húsið væri tengt vatnsveitu. Þá lá fyrir ógreiddur vatnsreikningur upp á um 1.900 dali. Angelina, sem átti von á barni aðeins þremur dögum eftir blóðbaðið, hafði að sögn sagt öðrum að hún hygðist yfirgefa föður sinn eftir barnsburð, sagði Lorah. Hún hafði einnig haldið því fram að faðir hennar hefði beitt bræður hennar ofbeldi.
Rannsóknin hófst eftir að lögregla brást við tilkynningu um skotárás á heimilinu og fann tvær konur látnar fyrir utan húsið. Vitni sögðu að konurnar hefðu „komið að húsinu, virst mjög skelkaðar og leitað eftir aðstoð nágranna,“ að sögn lögreglunnar í Erie. Lorah greindi frá því á fimmtudag að innan við 30 mínútum áður en lögregla kom á vettvang hefði Angelina hringt í Roberts í gegnum myndsímtal á Facebook, og Roberts hefði þá flýtt sér á staðinn. Roberts sagði ættingja að Angelina þyrfti á aðstoð að halda. Roberts og Tanner komu að húsinu og telur lögreglan að þau hafi verið skotin eftir að Matthew eldri hafði ráðið fjölskyldu sinni bana. Lögregla fór inn í húsið klukkan 19:12 og fann líkin á ýmsum stöðum í húsinu.
Þótt fréttastofan Associated Press hafi áður vísað í skýrslu réttarlæknis þess efnis að settur dagur hjá Angelinu hafi verið mánudagur, komu aðstandendur með tuskudýr, kerti og blöðrur á minningarathöfn um ungbarnið Kyrie á miðvikudaginn, dag sem þeir sögðu vera áætlaðan fæðingardag barnsins. Við minningarathöfnina sagði dóttir Tanner við fréttamiðilinn að móðir hennar hefði verið „yndisleg kona. Umhyggjusöm. Hún hjálpaði öllum.“ „Hún ætlaði að aðstoða fjölskylduvin, en lét lífið í þeirri viðleitni að hjálpa einhverjum öðrum sem henni þótti vænt um og hugsaði um,“ sagði Aniecia Al-Amiri. Efnt var til söfnunar á GoFundMe til að standa straum af útfararkostnaði vegna Angelinu og barna hennar.